• Skip to primary navigation
  • Skip to main content
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer
Nordic Baker
  • Home
  • About me
  • Recipes
  • Dinner
  • Baking
  • Sides
  • Sourdough
  • Cakes and sweets

Besta kladdkakan

mars 21, 2021 by kristinarnors

Jump to Recipe Print Recipe

Ég veit, það er alltaf frekar djarft að varpa því fram að eitthvað sé “best”. En þessi kladdkökuuppskrift er sú besta af mjög mörg sem ég hef prófað og þróað. Eftir að ég smakkaði frosnu kladdkökuna frá Frödinge kolféll ég fyrir kladdkökum. Ég fann samt enga uppskrift sem var nógu svipuð henni, þannig að ég fór í það verkefni að þróa mína eigin.

Kladdkaka frödinge copycat

Uppskriftin sem fylgir hér fyrir neðan er útkoman úr þrotlausri tilraunastarfsemi og leit að rétta jafnvæginu í bragði og réttu áferðinni. Ég mæli sérstaklega með þessari sem eftirrétt í matarboði. Það er mjög einfalt að búa kökuna til og tekur stutta stund að baka hana. Hún er líka einstaklega góð deginum eftir bökun – og það besta er að hún bragðast og lítur út fyrir að vera flóknari en hún er.

Kladdkaka fresh from the oven

    Vinsamlegast getið heimilda.

    Kladdkaka
    Print Recipe

    Besta kladdkakan

    Prep Time15 minutes mins
    Cook Time15 minutes mins

    Ingredients

    • 3 dl sykur
    • 3 lítil egg
    • 1 1/2 dl matarolía
    • 1 1/2 tsk vanilludropar
    • 1 2/3 dl hveiti Kornax
    • 1 1/3 dl kakó
    • 1 tsk salt

    Flórsykur til að dreifa yfir

    Instructions

    • Hitið ofnin í 175°c
    • Blandið eggjunum, sykrinum, olíunni og vanilludropunum saman í skál, þar til allt hefur blandast mjög vel. Bætið hveitinu, kakóinu, saltinu út í og hrærið rétt nóg til að allt hefur blandast.
    • Hellið í smurt bökunarform, eða bökunarform klætt bökunarpappír. Ég nota 18x24cm ofnfast mót.
    • Hér kemur það eina vandasama við að gera kladdköku. Það þarf að passa vel að ofbaka kökuna ekki. Bakið kökuna í ca 12-13 mínútur og fylgist vel með henni. Ef þið stingið í hana og deigið festist ekki í endunum, en festist í miðjunni, þá er hún tilbúin. Þetta tekur um 15 mínútur í mínum ofni.
    • Kælið kökuna alveg áður en þið dustið flórsykrinum yfir og berið hana fram.

    Filed Under: Uppskriftir

    Previous Post: « Einfaldur chia grautur með haframjólk, berjum og kókosflögum

    Primary Sidebar

    Catagories

    • Uppskriftir
      • Bakstur
        • Kökur og sætabrauð
      • Kvöldmatur
      • Meðlæti

    Ég veit, það er alltaf frekar djarft að varpa því fram að eitthvað sé “best”. En þessi kladdkökuuppskrift er sú besta af mjög mörg sem ég hef prófað og þróað. Eftir að ég smakkaði frosnu kladdkökuna frá Frödinge kolféll ég fyrir kladdkökum. Ég fann samt enga uppskrift sem var nógu svipuð henni, þannig að ég…

    Read More

    About me

    Ég er tölfræðingur, móðir, forfallinn áhugabakari, kokkur og nautnaseggur. Mér er annt um umhverfið og líkamlega heilsu, og legg því mesta áherslu á grænmetismiðað fæði, súrdeigsuppskriftir í bland við hefðbundnar norrænar uppskriftir. Ég elska að prófa mig áfram með mat og hanna nýjar uppkriftir, og ég tek sjálfa mig aldrei of alvarlega. Read More…

    Footer

    Copyright © 2025 Nordic Baker on the Foodie Pro Theme